Guillermo Ochoa mun fara með Mexíkó á HM í sumar og í kjölfarið mun hann svo leggja hanskana á hilluna.
Markvörðurinn mun ná sögulegum áfanga þegar hann tekur þátt í sínu sjötta heimsmeistaramóti, en það mun hann gera á þessu móti ásamt Cristiano Ronaldo og Lionel Messi, eftir að hafa verið með á öllum mótum frá árinu 2006.
„Memo“ eins og hann er kallaður fór á HM í Þýskalandi sem þriðji markvörður og spilaði ekki, hann fór á HM 2010 í Suður-Afríku sem annar markvörður og kom heldur ekki við sögu þar sem hann var á eftir Óscar Pérez, en varð síðan lykilmaður á mótunum 2014, 2018 og 2022.
Það tengja margir Ochoa við stórmót í fótbolta en hann er býsna líflegur karakter og hefur reynst Mexíkóum öflugur.
Ochoa er fertugur að aldri og hefur spilað 151 landsleik fyrir Mexíkó.



