Tóti Dan: Mínir strákar geta haldið hökunni uppi
Auglýsing

Þórhallur Dan Jóhannsson, þjálfari Gróttu

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Þórhallur Dan Jóhannsson, þjálfari Gróttu, var ánægður með frammistöðu sinna manna eftir 2-1 tap í framlengdum leik gegn íA í 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins.
Grótta leikur í Inkasso-deildinni og heimsótti í kvöld Pepsi-deildarlið ÍA en það voru gestirnir sem komust yfir þökk sé marki frá Ingólfi Sigurðssyni. Heimamenn svöruðu því hinsvegar og skoraði Tryggvi Hrafn Haraldsson tvívegis til að senda heimamenn áfram eftir framlengingu.
„Mér fannst við flottir í dag, spiluðum vel og vorum að reyna spila fótbolta. Ég geng nokkuð sáttur frá þessu og mínir strákar geta haldið hökunni og brjóstkassanum uppi,\" sagði Þórhallur eftir leikinn.
„Það er gríðarleg saga hérna og hefð og við erum að reyna búa til eitthvað svoleiðis hjá Gróttu sem hefur verið 2. deildar lið lengi og brekkan er brött en hún er ekki óyfirstíganleg.\"
„Í dag var þetta jafn leikur sem datt þeim megin. Ef menn leggja sig fram þá koma úrslitin hægt og rólega vonandi.\"
Viktor Smári Segatta verður eitthvað frá vegna ökklameiðsla en Þórhallur hefur ekki áhyggjur af því enda Grótta með breiðan hóp.
„Við eru með stóran hóp og góðan, þótt Viktor meiðist þá verðum við pottþétt 11 sem byrjum.\"