Jesse Marsch hefur skrifað undir nýjan samning við fótboltasamband Kanada og verður áfram landsliðsþjálfari karlalandsliðsins þar í landi til HM 2030.
Marsch hafði áður verið með samning sem rann út eftir HM á þessu ári, en hefur nú framlengt dvöl sína eftir góða byrjun í starfi þar sem Kanada hefur náð sínum besta árangri á heimslista FIFA. Á tveimur árum hefur hann stýrt 29 leikjum með 14 sigrum, 7 jafnteflum og 8 töpum og leitt Kanada í undanúrslit á Copa America.

„Ég trúi á gríðarlega á möguleika þessa hóps og hlakka til að halda áfram að þróa fótboltann í landinu,“ sagði Marsch.
Hann hefur innleitt ákafan og pressumikinn leikstíl sem hann er þekktur fyrir eftir störf hjá Red Bull Salzburg, RB Leipzig og Leeds United.
Kanada fer nú inn í sitt þriðja HM frá upphafi, en Marsch hefur sett markið hátt og vill að liðið vinni riðilinn sinn. Fótboltasambandið segir að framlengingin sé gerð til að tryggja stöðugleika og halda áfram uppbyggingu landsliðsins til framtíðar.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!