Fotbolti.net
30.06.17 - 21:29
Egill Sigfússon

Lárus Orri: Fyrsta skipti sem við höfum smá heppni með okkur

Auglýsing
Lárus Orri: Fyrsta skipti sem við höfum smá heppni með okkur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þór vann 3-0 sigur á HK í 9.umferð Inkasso-deildarinnar á Þórsvelli í kvöld.

Lárus Orri þjálfari Þórsara var að vonum mjög ánægður með leik sinna manna.

„Við vorum mun betri aðilinn, sérstaklega í fyrri hálfleik. Það kom þarna smá kafli í seinni hálfleik sem þeir náðu að pressa aðeins á okkur, en heilt yfir vorum við mun betri aðilinn.\"

HK átti tvö stórhættuleg skot nokkrum mínútum fyrir annað mark Þórs. Lárus sagði að það væri alveg kominn tími á smá heppni með sínum mönnum.

„Það eru einu tvö atriðin sem þeir eru að ógna okkur eitthvað í öllum leiknum. Við vorum heppnir þarna í þessu tilfelli að boltinn fór í stöng, stöng og út. Ef við lýtum yfir þessa 8 leiki sem búnir eru, þá held ég að þetta sé í fyrsta skipti sem við erum með smá heppni með okkur\"

Gunnar Örvar er búinn að vera að glíma við meiðsli undanfarið og kom inná í dag, hann var markahæstur í deildinni í fyrra og Lárus er ánægður að eiga hann inni.

„Það er gott að hafa svona sterka menn eins og Gunna á bekknum til að koma inn, hann stóð sig vel þegar hann kom inn.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.