Fotbolti.net
30.06.17 - 22:27
Elvar Geir Magnússon

Óli Brynjólfs: Reikna með því að ég verði með Portúgalanum

Auglýsing
Óli Brynjólfs: Reikna með því að ég verði með Portúgalanum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framarar náðu í stig á Selfoss í kvöld. Ólafur Brynjólfsson, bráðabirgðastjóri Framara, telur að jafntefli hafi verið sanngjörn niðurstaða.
„Á heildina litið erum við sáttir, auðvitað komum við til að ná í þrjú stig. Heilt yfir var leikurinn í jafnvægi. Fyrir utan síðustu 20 þá slitnaði og þeir fengu tvö mjög góð færi sem þeir nýttu ekki. Við tiltölulega heppnir þar. Við fengum líka sénsa, heilt yfir er jafntefli sanngjarnt,\" segir Ólafur.

Jöfnunarmark Orra Gunnarssonar fyrir Fram var stórglæsilegt.

„Hann setur hann svakalega. Þetta var ótrúlega fallegt mark og ótrúlega gott hlaup sem hann tók. Hann hitti boltann svakalega.\"

Portúgalinn Pedro Hipólito var í stúkunni í kvöld en Framarar eru í viðræðum við hann um að taka við liðinu.

„Ég reikna með því að stjórnin gangi frá honum um helgina. Það er allavega planið. Ég verð væntanlega með honum sem aðstoðarþjálfari. Er ekki fínt að læra af einhverju nýju? Mér lýst vel á hann eftir það litla sem ég hef rætt við hann. Þetta kemur allt í ljós,\" segir Ólafur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.