Daníel Tristan kominn með nýjan þjálfara

Daníel byrjaði einungis einn deildarleik undir stjórn Angel Ramirez.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Daníel byrjaði einungis einn deildarleik undir stjórn Angel Ramirez.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Daníel Tristan Guðjohnsen og félagar í Malmö eru komnir með nýjan aðalþjálfara. Norðmaðurinn Gaute Helstrup er tekinn við liðinu en hann var áður aðstoðarþjálfari Bodö/Glimt.
Gengi Malmö hefur ekki verið á pari við væntingar síðustu tvö ár. Á síðasta ári endaði liðið í 6. sæti í Allsvenskan og situr liðið nú í 9. sæti þegar þriðjungur er búinn af mótinu.
Gengi Malmö hefur ekki verið á pari við væntingar síðustu tvö ár. Á síðasta ári endaði liðið í 6. sæti í Allsvenskan og situr liðið nú í 9. sæti þegar þriðjungur er búinn af mótinu.
Spánverjinn Miguel Angel Ramirez var látinn taka pokann sinn hjá Malmö í lok maí, skömmu fyrir HM hlé.
Sænska deildin fer aftur af stað þann 3. júlí og hefur Malmö leik degi síðar er þeir heimsækja Degerfors.
Sænska deildin fer aftur af stað þann 3. júlí og hefur Malmö leik degi síðar er þeir heimsækja Degerfors.
Välkommen Gaute. ???? ????????
— Malmö FF (@Malmo_FF) June 30, 2026
Gaute Helstrup är ny huvudtränare i Malmö FF.https://t.co/ZO7Y9EeBrY pic.twitter.com/ZDv1jMZuU8







