Fotbolti.net
20.07.26 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Mbappe sá fyrsti til að vinna gullskóinn tvisvar í röð

Mbappe sá fyrsti til að vinna gullskóinn tvisvar í röð
Canon

Mynd: EPA

Kylian Mbappe varð fyrsti leikmaðurinn til að vinna Gullskóinn á HM tvisvar eftir að hafa hlotið verðlaunin sem markahæsti leikmaður á mótinu 2026.

Franski framherjinn skoraði 10 mörk í átta leikjum og hafði betur gegn Lionel Messi. Mbappe skoraði átta mörk og endaði sem markahæsti leikmaður á HM í Katar 2022 og hefur því unnið Gullskóinn tvö ár í röð.
Þessi 27 ára gamli leikmaður var fyrsti maðurinn til að ná tveggja stafa tölu í mörkum á HM síðan Gerd Muller gerði það fyrir Vestur-Þýskaland árið 1970.

Aðeins Just Fontaine, sem skoraði 13 mörk fyrir Frakkland árið 1958, og Ungverjinn Sandor Kocsis með 11 mörk árið 1954, hafa skorað fleiri mörk í einu móti.

Mbappe er nú einnig markahæsti leikmaður HM frá upphafi með 22 mörk - einu marki á undan Messi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.