Fotbolti.net
20.07.26 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Trump: Einn stærsti viðburður af nokkru tagi sem haldinn hefur verið

Trump: Einn stærsti viðburður af nokkru tagi sem haldinn hefur verið
Canon

Mynd: EPA

Heimsmeistaramótinu lauk í gær eftir sigur Spánar á Argentínu í úrslitaleiknum.

Riðlakeppnin fór fram í Mexíkó, Kanada og Bandaríkjunum en úrslitaleikurinn fór fram á MetLife vellinum í New Jersey í Bandaríkjunum.
Donald Trump, Bandaríkjaforseti, mætti á leikinn en þetta var eini leikurinn þar sem hann var viðstaddur. Fjölmiðlamenn ræddu við hann þegar hann var á leið heim til Washington D.C. eftir leikinn.

„Þetta var einn stærsti viðburður af nokkru tagi sem haldinn hefur verið. Það hefur aldrei neitt annað eins verið haldið áður, líklega hvað varðar viðburð, hvað þá fótbolta," sagði Trump.

„Það var fjórum sinnum stærra en nokkuð sem FIFA hefur nokkurn tíma haldið. Við erum stolt af landinu okkar. Við óskum Gianni Infantino til hamingju og öllu hans starfsfólki."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.