Jason Daði spáir í næstu leiki HM

Jason Daði gekk í raðir KR á dögunum.

Mynd: KR

Fáum við sýningu frá Mbappe?

Mynd: EPA

Jason Daði gekk í raðir KR á dögunum.

Mynd: KR
Það eru fjórir leikir búnir í 32-liða úrslitunum og eru bæði Þýskaland og Holland fallin úr leik.
Verða fleiri óvænt úrslit í næstu leikjum mótsins? Við fengum Jason Daða Svanþórsson, nýjan leikmann KR, til að spá í spilin.

Fílabeinsströndin 1 - 2 Noregur (17:00 í dag)
Stál í stál í fyrri hálfleik en leikurinn opnast í þeim síðari. Amad kemur Fílabeinsströndinni yfir snemma í seinni hálfleik með glæsimarki en Haaland jafnar stuttu seinna. Haaland rekur svo síðasta naglann í kistu Fílabeinsstrendinga og Norsarar fagna með sinni skemmtilegu útgáfu af víkingaklappinu.
Frakkland 4 - 1 Svíþjóð (21:00 í kvöld)
Sýning hjá Mbappé sem skorar öll 4. Viktor Gyökeres skorar sárabóta mark fyrir Svíana. Ásgeir Frank og félagar á leið heim.
Mexíkó 0 - 0 Ekvador (01:00 í nótt)
Þessi leikur leitar í jafnteflið og fer alla leið í vítaspyrnukeppni. Raul Rangel rífur blaðsíðu úr handbók Ricardo Pereira þar sem hann tekur af sér hanskana og ver slaka spyrnu Moises Caicedo. 4-3 lokatölur í vítaspyrnukeppni og Mexico áfram ósigraðir.