Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fim 30. júlí 2020 15:15
Magnús Már Einarsson
Zlatan: Ég er eins og Benjamin Button
Mynd: Getty Images
„Fólk segir við mig að ég sé að verða gamall og þreyttur en ég er bara rétt að hita upp," sagði sænski sóknarmaðurinn Zlatan Ibrahimovic eftir að hann skoraði tvö mörk í 4-1 sigri AC Milan gegn Sampdoria í Serie A í gær.

Hinn 38 ára gamli Zlatan hefur skorað níu mörk síðan hann kom aftur til AC Milan í janúar síðastliðnum.

„Ég er eins og Benjamin Button, fyrir utan það að ég verði alltaf ungur, aldrei gamall," sagði Zlatan.

Zlatan vísaði þar í óskarsverðlaunamynd frá 2008 sem fjallaði um Benjamin Button en hann varð alltaf yngri eftir því sem árin færðust yfir.

Sjá einnig:
Zlatan fyrstur til að skora 50 mörk fyrir bæði liðin í Mílanó
Athugasemdir
banner
banner
banner