Fotbolti.net
29.07.26 - 21:22
Snæbjört Pálsdóttir

Alli Jói: „Hún lofar mjög góðu“

Auglýsing
Aðalsteinn, þjálfari Þórs/KA, sagði liðið hafa skort trú á köflum í 2-0 tapinu gegn Breiðabliki.

Aðalsteinn, þjálfari Þórs/KA, sagði liðið hafa skort trú á köflum í 2-0 tapinu gegn Breiðabliki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn

Breiðablik vann 2-0 sigur á Þór/KA í Bestu deild kvenna í kvöld. Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, þjálfari Þórs/KA, var svekktur með byrjun sinna leikmanna og taldi að liðið hefði skort trú á köflum.

Lestu um leikinn: Breiðablik 2 - 0 Þór/KA

„Það er alltaf svekkjandi að tapa. Við byrjuðum leikinn bara alls ekki nógu vel og vorum bara of litlar í okkur. En við náðum að spyrna frá og keppa í fyrri hálfleik og hefðum átt að fara með jafna stöðu inn í hálfleikinn.“


Þór/KA fékk gullið tækifæri til að jafna í uppbótartíma fyrri hálfleiks en vítaspyrna liðsins fór í stöngina.

„Magga steig upp, setti markmanninn í vitlaust horn og þetta var bara sentimetra óheppni. En þetta er partur af þessu. Stundum fellur hann með þér og stundum á móti.“

„Við þurfum bara að átta okkur á því að við getum keppt og unnið alla þegar við erum ‘on it’. Það skorti aðeins trú í liðið á köflum í dag. Ef við horfum eingöngu inn á við þá held ég að það hafi verið stærsti hluturinn sem við hefðum mátt gera betur.“


Libby Moore byrjaði sinn fyrsta leik fyrir Þór/KA og Aðalsteinn var ánægður með hennar framlag.

„Mér fannst Libby góð. Við ákváðum að skipta henni út af vegna orkunnar og annars, en mér fannst hún góð í þessum leik og hún lofar mjög góðu.“


Töluverðar breytingar hafa orðið á leikmannahópi Þórs/KA í glugganum. Félagið leitar nú að frekari liðsstyrk en ekkert er staðfest í augnablikinu.

„Við hefðum alveg viljað vera komin með eitthvað konkret en við erum að leita og það verður bara að koma í ljós. Þetta er erfiður markaður akkúrat núna.“

„Vonandi dettur eitthvað inn en það er ekkert konkret.“


Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.