Fotbolti.net
29.07.26 - 21:37
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Lengjudeildin: Tvö rauð í sigri Þróttar í toppslagnum

Aron Snær Ingason

Aron Snær Ingason

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Þróttur R. 4 - 1 Afturelding
1-0 Kári Kristjánsson ('28 , víti)
2-0 Aron Snær Ingason ('35 )
3-0 Aron Snær Ingason ('45 )
4-0 Örn Bragi Hinriksson ('53 )
4-1 Trausti Þráinsson ('89 )
Rautt spjald: ,Enes Cogic, Afturelding ('32)Andi Hoti, Afturelding ('37) Lestu um leikinn
Þróttur fékk Aftureldingu í heimsókn í ótrúlegum leik í Lengjudeildinni í kvöld.

Kári Kristjánsson kom Þrótturum yfir með marki úr vítaspyrnu. Stuttu síðar sauð upp úr og Enes Cogic aðstoðarþjálfari Aftureldingar fékk að líta rauða spjaldið.

Aron Snær Ingason bætti síðan öðru marki Þróttar við þegar hann skoraði úr þröngu færi.

Vont versnaði fyrir Aftureldingu þegar Andi Hoti var rekinn af velli með rautt spjald fyrir að brjóta á Erni Braga Hinrikssyni þegar hann var að sleppa í gegn.

Aron Snær bætti síðan við sínu öðru marki og þriðja marki Þróttar undir lok fyrri hálfleiks.

Örn Bragi gerði síðan svo gott sem út um leikinn snemma í seinni hálfleik þegar hann skoraði fjórða mark Þróttar. Trausti Þráinsson skoraði sárabótamark fyrir Aftureldingu undir lokin en nær komust þeir ekki.

Þróttur er á toppnum með 33 stig, jafn mörg stig og Fylkir en Afturelding er í 3. sæti með 31 stig.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Þróttur R.19+2137
2Afturelding18+2236
3Fylkir19+734
4HK19+932
5Njarðvík19+632
6Grótta18+127
7Leiknir R.19+225
8Vestri19-1124
9ÍR19-722
10Grindavík19-621
11Völsungur19-1220
12Ægir19-328
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.