Fotbolti.net
29.07.26 - 21:25
Magnús Atlason

Borja: Köstuðum þessum frá okkur

Auglýsing
Borja: Köstuðum þessum frá okkur
Canon

Mynd: Völsungur

Lengjudeildin
Fylkir og Völsungur áttust við í 16. umferð Lengjudeildarinnar í Árbænum. Fylkir sigraði leikinn 3-1 eftir fjörugan seinni hálfleik. Fótbolti.net var að sjálfsögðu á staðnum og náði viðtali við Borja Martin Iglesias þjálfara Völsungs eftir leik.
"Mér fannst við spila vel í fyrri hálfleik og fyrstu 20 mínúturnar í seinni en síðustu 15 mínúturnar vorum við orkulausir."

Eftir góða byrjun á seinni hálfleik náði Fylkir tökum á leiknum á 60. mínútu eða svo. Völsungur fékk svo tvö mörk á sig á tveimur mínútum. Misstu þeir einbeitinguna?

"Já. Maður getur tapað leiknum á tveimur mínútum. Eftir alla vinnuna sem við lögðum í leikinn, köstuðum við því frá okkur á tveimur mínútum."

Húsvíkingar eiga þrátt fyrir tapið fínan möguleika á því að losna úr fallsæti en þeir eru ekki nema 3 stigum frá öruggu sæti þegar þetta er skrifað.

"Nú förum við bara að slaka á, til þess að hvíla líkamann og hugann. Söfnum upp orku fyrir síðastu mánuði tímabilsins."

Horfðu á viðtalið í spilaranum hér að ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.