Fotbolti.net
29.07.26 - 21:17
Snæbjört Pálsdóttir

Olla skoraði bæði í kveðjuleiknum: „Ef þú hefðir beðið um þrjú þá hefði ég skorað þrjú“

Auglýsing
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir skoraði bæði mörk Breiðabliks í síðasta leiknum áður en hún heldur aftur til Harvard.

Ólöf Sigríður Kristinsdóttir skoraði bæði mörk Breiðabliks í síðasta leiknum áður en hún heldur aftur til Harvard.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn

Ólöf Sigríður Kristinsdóttir kvaddi Breiðablik í bili með tveimur mörkum þegar liðið vann 2-0 sigur á Þór/KA á Eikarvellinumí kvöld. Ólöf heldur nú aftur út til Bandaríkjanna þar sem hún stundar nám við Harvard.

Lestu um leikinn: Breiðablik 2 - 0 Þór/KA

„Tilfinningarnar eru bara góðar. Ég er að fara aftur út í skólann þannig að það er gott að enda á þessu,“ sagði Ólöf eftir leik.

Þegar hún var spurð hvort hægt hefði verið að óska sér betra handrit að kveðjuleiknum svaraði hún létt:

„Þrenna hefði kannski verið aðeins betri. Nei, en ég meina, tvö mörk í sigri.“


Hjörtur styrktarþjálfari Breiðabliks kom þá aðsvífandi og sagðist hafa beðið Ollu um 2 mörk og hún stóð við sitt. 

„Ef þú hefðir beðið um þrjú þá hefði ég getað skorað þrjú.“

Mörkin tvö voru af ólíkum toga. Í því fyrra þurfti Ólöf aðeins að koma boltanum yfir línuna eftir frábæran undirbúning Ásu, en hún hafði meira fyrir því síðara.

„Fyrsta markið var bara Ása ógeðslega góð. Hún komst alveg út við og kom með boltann inn. Ég þurfti bara að setja fótinn í hann, raunverulega.“

„Í seinna markinu sá ég Ásu hlaupa. Arna þurfti að taka ákvörðun um hvort hún ætti að taka Ásu en gerði eiginlega hvorugt. Ég náði því að fara áfram og tók svo skot í hornið.“


Breiðablik vann Val 7-1 í síðustu umferð en þurfti að hafa meira fyrir sigrinum gegn Þór/KA. Ólöf taldi beinskeyttan leik og gæði Blikaliðsins hafa skilið liðin að.

„Ég held að það sé hvað við erum beinskeyttar, ef ég á að segja eitthvað eitt. Svo eru það líka gæðin. Án þess að taka neitt af Þór/KA þá erum við með mjög gott lið og gæði í öllum stöðum. Ég held að það hafi verið það sem skildi liðin að í dag.“


Ólöf ætlar að fylgjast vel með liðsfélögum sínum frá Bandaríkjunum og var ekki í neinum vafa þegar hún var spurð hvar Blikakonur myndu enda tímabilið.

„Íslandsmeistarar, að sjálfsögðu.“


Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.