Fotbolti.net
29.07.26 - 21:58
Viktor Ingi Valgarðsson

Óli Stefán stoltur af liðsheildinni eftir „helvítis törn" og veikindi í hópnum

Auglýsing
Óli Stefán Flóventsson þjálfari Selfoss

Óli Stefán Flóventsson þjálfari Selfoss

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Selfoss vann þriðja leik sinn í röð í kvöld. 2-1 sigur á JÁVERK-vellinum á Selfossi gegn Dalvík/Reynir. Heimamenn byrjuðu betur og komust tveimur mörkum yfir en þurftu heldur betur að berjast restina af leiknum til að fá þessi þrjú stig.

Óli Stefán þjálfari Selfoss var að sjálfsögðu sáttur með sitt lið og talað meðal annars um þroska í spilamennsku liðsins í viðtali eftir leik.

Lestu um leikinn: Selfoss 2 - 1 Dalvík/Reynir

„Þetta er búið að vera helvítis törn, hópurinn búin að vera í veikindahrinu. Þannig þetta álag hefur komið á fáa skrokka. Höfum verið það þunnir að maður sá það þegar fór að líða á leikinn að það var farið að þreytast vel í þessu. Þannig ég er ánægður að hafa náð að draga þetta að landi. Mér er létt og gríðarlega stoltur af strákunum."

Selfoss liðið átti fínan fyrri hálfleik en voru undir í baráttunni í seinni hálfleik og þurftu að þjást nánast allar síðustu 45.mínúturnar. „Þegar við vorum að gera upp fyrri helming sumarsins þá var ég að skoða tölfræði sem að var í hausnum á mér þegar að þeir voru farnir að herja á okkur. Við erum með fimm jafntefli og í öllum þeim höfum við tapað niður unnum stöðum á síðustu tíu mínútum. Þannig eigum við ekki að segja að þetta sé ákveðinn þroski og seigla sem við búum að núna."

Aron Lucas Vokes skoraði bæði mörk Selfoss í dag meðan Viðar Örn tók sér smá pásu í markaskorun í kvöld. „Held við séum miklu öflugri liðsheild heldur en fólk gerir sér grein fyrir. Auðvitað erum við með stjörnurnar tvær sem að vekja athygli. En Aron Lucas er gott dæmi, hefur eiginleika sem að fáir aðrir hafa. Hann nýttist vel í dag en ég get líka alveg nefnt aðra, fyrst og fremst er ég stoltur af liðinu mínu. Þurftum virkilega að hafa fyrir þessu og þetta eru ákveðin þroska merki sem við sýndum í dag."

Selfoss fékk Filip Sabatti í markið fyrir stuttu en hann hefur varið markið í síðustu þremur leikjum og það reyndi heldur betur á hann í dag. „Hann hefur haft góð áhrif á okkur, öflugur markmaður og toppmaður líka.

„Við lendum í því fyrir austan um daginn að ég er með níu leikmenn frá, var með fimm veika og það voru tveir leikhæfir útileikmenn á bekknum hjá mér. Þurftum að púsla saman úr liðinu og einsog Heiðar Helguson (aðstoðarþjálfari Selfoss) sagði, stundum verður bara eitthvað til, eitthvað passar. Það hefur verið þannig taktur í okkur, duttum inná eitthvað sem virkar fyrir okkur. Það er ótrúlega góð tilfinning að klára þessa törn, tveir erfiðir útileikir og á fáum mönnum. Er ótrúlega stoltur af strákunum og þeim liðsanda sem er að myndast í gegnum þetta núna."

Selfoss er um þessar mundir í 2.sæti í deildinni. Þrjú stig eru í Hauka á toppnum og fjögur stig frá 3.sætinu. „Ég er nú svo skrítin að með þetta og hef talað svolítið um það. Ég er ótrúlega lítið að spá í þessari töflu, það er bara svoleiðis. Langar fyrst og fremst að vinna með þessa stráka, vegna þess að þetta er mjög ungt lið og eru að læra hratt, er með 16 ára hafsent (Maksymilian Luba) sem að spilar eins og kóngur. Það er það sem ég er að fókusa á. Svo þegar það kemur að endasprettinum getum við aðeins kíkt á stöðuna. Ánægður með þá átt sem við erum að þróast í núna."

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.