Fotbolti.net
30.07.26 - 19:53
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sambandsdeildin: Evrópuævintýri Vestra lauk með jafntefli

Sambandsdeildin: Evrópuævintýri Vestra lauk með jafntefli
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Vestri 1 - 1 RFS (2-5 samanlagt)
1-0 Þórður Gunnar Hafþórsson ('12 )
1-1 Mamadou Sylla ('16 )
Lestu um leikinn
Fyrsta Evrópuævintýri Vestra er lokið eftir jafntefli gegn RFS frá Lettlandi í Laugardal í kvöld. Vestri tapaði fyrri leiknum í Lettlandi 4-1.

Vestri náði forystunni snemma leiks. Johannes Selven átti skot í stöng og boltinn barst til Þórðar Gunnars Hafþórssonar sem skoraði.

Gestinrir voru ekki lengi að svara því Mamadou Sylla jafnaði metin aðeins fjórum mínútum síðar.

Gestirnir voru nálægt því að innsigla sigurinn undir lokin en Kingsley Emenike átti skot yfir markið.

Elmar Atli Garðarsson fékk síðasta færi Vestra en skallaði framhjá markinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.