30.07.26 - 19:04
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Gomez missir af fyrstu leikjum tímabilsins

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Joe Gomez, varnarmaður Liverpool, meiddist í fyrsta æfingaleik liðsins á undirbúningstímabilinu gegn Sunderland á dögunum. Sky Sports greinir frá því að félagið ætli ekki að fá inn nýjan miðvörð í sumar þar sem meiðslin eru ekki talin alvarleg.
Félagið ætlar að kaupa sóknarman en Liverpool mun leggja fram formlegt tilboð í Bradley Barcola, leikmann PSG.
Talið er að Gomez muni missa af fyrstu leikjum liðsins á komandi tímabili en liðið hefur leik í úrvalsdeildinni á útivelli gegn Newcastle þann 23. ágúst.
Virgil van Dijk snýr aftur í hópinn eftir HM frí í þessari viku. Giovanni Leoni er enn í endurhæfingu eftir að hafa slitið krossband snemma á síðustu leiktíð. Þá mun Jeremy Jacquet, sem gekk til liðs við félagið í sumar, spila sinn fyrsta leik gegn Leeds á sunnudaginn eftir langvarandi meiðsli á öxl.
Útlit er fyrir að Van Dijk og Jacquet verði einu aðalliðs miðverðir liðsins í fyrstu leikjum tímabilsins.