Fotbolti.net
30.07.26 - 18:50
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sambandsdeildin: Stjarnan kvaddi Evrópu eftir vító

Úr fyrri leik liðanna

Úr fyrri leik liðanna

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Ilves 2 - 1 Stjarnan (5-4 í vító)
1-0 Jesse Kilo ('52 )
1-1 Faris Krkalic ('107 , sjálfsmark)
2-1 Tatu Miettunen ('113 )
Lestu um leikinn
Stjarnan er úr leik í Evrópukeppni þetta árið eftir tap gegn Ilves á útivelli í vítaspyrnukeppni í kvöld. Stjarnan leiddi einvígið með einu marki eftir sigur í Garðabæ í fyrri leiknum.

Finnarnir voru nálægt því að komast yfir þegar Oliver Pettersson átti skalla í þverslána.

Jóhann Árni Gunnarsson fékk fyrsta færi Stjörnunnar þegar hann átti fast skot að marki en Faris Krkalic markvörður Ilves varði vel.

Finnarnir jöfnuðu einvígið snemma í seinni hálfleik þegar Jesse Kilo skoraði með skoti í nærhornið frá vítateigslínunni.

Fleiri mörk urðu ekki skoruð í venjulegum leiktíma. Stjarnan komst yfir í einvíginu þegar Bjarki Hauksson átti skot í slá og boltinn fór í bakið á Faris Krkalic og í netið.

Þessu var ekki lokið því Tatu Miettunen skoraði með skalla þegar skammt var til loka leiksins og jafnaði einvígið aftur. Það var gríðarleg dramatík í blálokin. Ilves skoraði á síðustu sekúndum leiksins en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Það þurfti því að fara í vítaspyrnukeppni.

Andri Rúnar Bjarnason var fyrstur á punktinn en hann lét Krkalic verja frá sér. Bæði lið nýttu allar sína spyrnur eftir það og Ilves stóð uppi sem sigurvegari. Evrópuævintýri Stjörnunnar er því á enda þetta árið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.