Fotbolti.net
30.08.17 - 20:07
Aron Elvar Finnsson

Lárus: Standardinn á dómgæslunni á Íslandi er alveg skelfilegur

Auglýsing
Lárus: Standardinn á dómgæslunni á Íslandi er alveg skelfilegur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

„Í svona 30-35 mínútur var þetta bara barningur. Jafnræði með liðunum, mikil barátta og eftir það kemur furðulegur kafli þar sem spilar inn í slæm dómaramistök og einbeitingaleysi hjá mínu liði,“ sagði Lárus Orri Sigurðsson þjálfari Þórs eftir 0-3 tap gegn Keflavík í Inkasso-deildinni í dag.
„Í seinni hálfleik var ég mjög ánægður með viðbrögðin hjá mínu liði, við vorum miklu betri en þeir og það var bara eitt lið á vellinum í seinni hálfleik og við hefðum átt að skora fjögur, fimm mörk.“

Lárus Orri vill meina að dómgæslan í Inkasso-deildinni sé ekki nógu góð.

„Nokkur atriði: Þið megið segja að ég sé að væla útaf ég tapaði en það er ekki bara það. Standardinn á dómgæslunni hérna á Íslandi er alveg skelfilegur. Hann Siggi sem dæmir þennan leik er norðanmaður og við erum búnir að sjá hann dæma hérna í öðrum flokk og hann er bara ekki nógu góður. Það er ekkert honum að kenna, hann er sjálfsagt að reyna sitt besta.“


„Það er kannski ekki heldur aðal punkturinn. Heldur allur leikurinn, hvernig hann dæmir leikinn. Hann hefur enga tilfinningu fyrir þessu. Síðasti heimaleikurinn hjá okkur á móti Fram. Mjög góður leikur hjá okkur, þar sem að dómarinn er alveg skelfilegur. Aftur er ég ekki að segja að hann komi hérna til að dæma á móti okkur, heldur er hann bara ekki nógu góður.“


„Það verður að fara að gera eitthvað í þessu. Standardinn á fótboltanum í Inkassó-deildinni er svo langt fyrir ofan levelið á dómurunum að það er alveg skelfilegt. Nú verður KSÍ að fara að gera eitthvað í þessu. Gerið þessa bestu dómara Íslands að atvinnumönnum. Gerið þetta þannig að það verður eftirsótt að vera dómari. Gerið eitthvað í þessu, því þetta er ekki hægt svona. Fótboltinn er kominn svo langt fram úr dómurunum að þetta er til vandræða,“ sagði Lárus Orri.


Viðtalið má sjá hér í heild sinni hér að ofan.
Lárus: Standardinn á dómgæslunni á Íslandi er alveg skelfilegur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.