Arnar Grétars: Við þurfum að skerpa leik okkar á síðasta þriðjungnum
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var tiltölulega jafn leikur. Liðin skiptust á því að sækja og verjast. Það var ekki mikið um opnanir," sagði Arnar Grétars eftir
0-0 jafntefli á móti Stjörnunni á Greifavellinum í dag.

„Stjarnan fékk ekki mikið af færum. Það var kannski þarna í lokinn og þegar Emil fékk færið í fyrri hálfleik. Í byrjun vorum við að koma okkur í fína möguleika og hefðum átt að nýta okkur það en svona heilt yfir held ég að þetta hafi verið sanngjörn úrslit."
KA spilaði ágætis bolta í dag það vantaði upp á þegar komið var inn á síðasta þriðjung vallarins.
„Það vantaði aðeins upp á gæðin í þessu fáu færum sem við fengum í dag að nýta þau. Við vorum oft að koma okkur í mjög ákjósanlegar stöður en ákvörðunartakan kannski léleg eða sendinginn og föst eða laus og úr verður ekki dauðafæri. Það er eitthvað sem við verðum að bæta vegna þess að við erum að gera margt mjög vel. Holningin á liðinu er mjög góð. Stjarnan fær nánast enginn færi en þeir hafa verið að skora mikið og skapa sér mikið. Ég man varla eftir því að þeir hafi opnað okkar. Við þurfum að skerpa leik okkar svolítið að síðasta þriðjungnum."
Guðmundur Steinn þurfti að fara af velli um miðjan fyrri háflleik.
„Ég held að hann sé ekki meiddur en hann var kominn með einhvern krampa í aftan í læri og þá erum við ekki að taka neina sénsa. Við erum með þunnskipaðan hóp og megum illa við því að missa menn í meiðsli."
Rodrigo var ekki í hóp hjá KA í dag.
„Hann fékk högg á síðuna á móti Stjörnunni í síðasta leik. Við vitum ekki hvort það sé brákað rifbeinn. Við erum að vona að það sé ekki brotið. Hann verður frá allavega einhverjar vikur."
KA á Fylkir í næsta leik á heimavelli.
„Fylkir er að spila flottan fótbolta. Mikill hreyfanleiki og virkilega gaman að fylgjast með þeim þannig ég á bara von á hörkuleik. Það er í raun skiptir ekki máli á móti hverjum þú ert að spila. Þetta er allt erfiðir leikir."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.