Fotbolti.net
30.08.26 - 08:00
Guðmundur Jónasson

3. deild karla: Tindastóll skrefi nær 2. deild

Tindastóll unnu sterkann sigur gegn KH

Tindastóll unnu sterkann sigur gegn KH

Canon

Mynd: Sigurður Ingi Pálsson

Það voru 4 leikir á dagskrá í 3. deild í gær og fengum við nóg af mörkum.

Fjallabyggd 0 - 2 Augnablik

0-1 ('43 ) Elmar Daði Ívarsson

0-2 ('69 ) Guðmundur Andri Ólason

Rautt spjald: Finnur Breki Finnsson, Augnablik ('90) 

KF tók á móti Augnablik þar sem Augnablik unnu 0-2 sigur með mörkum frá Elmari Daða sem kom þeim í 1-0 á 43 markmínútunni miklu. Guðmundur Andri var svo á ferðinni á 69 mínútu og kom gestunum í 2-0. Finnur Breki Finnson fékk svo að líta rauða spjaldið á 90 mínútu eftir að hafa fengið sitt annað gula spjald á aðeins 30 mínútum.

KV 2 - 2 Sindri

Heimamenn komust yfir á 23 eftir mark frá Arnari Kára Styrmissyni. Þórður Örn jafnaði svo metin fyrir Sindra á 41 mínútu og hálfleikstölur því 1-1. Sindra menn komust síðan yfir á 61.mínútu með marki frá Fuseini Issah, KV voru svo fljótir að svara og jöfnuðu leikinn strax á 65.mínútu með marki frá Konráði Bjarnasyni.

Hottur 1 - 1 Ymir

Höttur tóku á móti Ými í einhvers konar botnslag sem endaði með 1-1 jafntefli. Ýmismenn skoruðu bæði mörk leiksins en Tómas Orri Barðason varð fyrir því óhappi að skora sjálfsmark á 18.mínútu en Ýmir voru fljótir að svara og skoruðu strax á 19.mínútu þar var Andri Már Harðarson á ferðinni og náði í gott stig fyrir Ými.

Tindastoll 3 - 1 Hildarendi

Tindastóll styrkti stöðuna sína eftir góðan sigur í toppslag á móti KH. Benjamín Jóhannes Gunnlaugarson kom Tindastól yfir á 17.mínútu og þannig stóðu tölur í hálfleik, Arnar Ólafsson kom Tindastól svo í þæginlega stöðu á 53.mínútu og Sverrir Hrafn Friðriksson innsiglaði svo sigurinn með marki á 82.mínútu og staðan orðinn 3-0 fyrir Tindastól. KH náðu aðeins að klóra í bakkann á 91.mínútu með marki frá Hauki Ásbergi Hilmarssyni. 

Sterkur sigur hjá Stólunum og sitja þeir í 2.sæti og eru 2 stigum á undan Reyni S. og einu stigi á Eftir Víði sem eru á toppi deildarinnar.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víðir20+3042
2Tindastóll20+1741
3Reynir S.20+1739
4KH20+2938
5KV20-130
6KF20-626
7Augnablik20-524
8Sindri20-824
9Höttur20-723
1020-2222
11Ýmir20-1420
12Árbær20-308
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.