Fotbolti.net
30.08.26 - 11:31
Brynjar Ingi Erluson

Alvarez mættur aftur til æfinga

Alvarez mættur aftur til æfinga
Canon

Mynd: EPA

Argentínski sóknarmaðurinn Julian Alvarez er mættur aftur til æfinga hjá spænska félaginu Atlético Madríd.
Alvarez hefur ekki æft með Atlético síðustu daga en spænskir fjölmiðlar segja hann hafa greint frá því að hann sé þunglyndur vegna stöðunnar.

Atlético neitar alfarið að selja hann til Barcelona og leikmaðurinn hefur ekki áhuga á að ganga til liðs við Englandsmeistara Arsenal. Ekkert annað félag virðist tilbúið að greiða uppsett verð sem talið er vera um 150 milljónir evra.

Eins og staðan er núna virðist Alvarez því ekki eiga annan kost en að sættast við stjórn Atlético og vinna sér aftur inn traust stuðningsmannanna.

Hann sneri aftur til æfinga í morgun þegar liðið hóf undirbúning fyrir leikinn gegn Sevilla um næstu helgi.

Alvarez, sem er 26 ára gamall, hefur komið að 66 mörkum í 107 leikjum með Atlético síðan hann kom til félagsins frá Manchester City fyrir tveimur árum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.