30.08.26 - 12:50
Brynjar Ingi Erluson
Barcelona gefst upp á Alvarez og fær Gabriel Jesus í staðinn

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Spánarmeistarar Barcelona hafa náð samkomulagi við Englandsmeistara Arsenal um kaup á brasilíska framherjanum Gabriel Jesus. Það er Fabrizio Romano sem segir frá þessu á X.
Samkvæmt Fabrizio Romano greiðir Barcelona enska félaginu rúmar 10 milljónir evra og hefur hann fengið leyfi til að fara í læknisskoðun á morgun.
Jesus er 29 ára og hefur leikið með Arsenal frá árinu 2022 þegar hann kom til félagsins frá Manchester City. Hann hefur verið orðaður við nokkur félög í sumar en hjólin fóru fyrst að snúast fyrir alvöru þegar Barcelona bankaði á dyrnar.
Barcelona sneri sér að Jesus eftir að ljóst varð að félaginu tækist ekki að sannfæra Atlético Madríd um að selja Julian Alvarez.
Jesus hefur skorað 32 mörk í 123 leikjum fyrir Arsenal og vann sinn fyrsta titil með félaginu þegar það varð Englandsmeistari í vor.

???????????? BREAKING: Barcelona agree deal to sign Gabriel Jesus from Arsenal, here we go!
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) August 30, 2026
Exclusive details: medical booked on Monday, #AFC to receive €10m package plus add-ons for permament deal.
Gabriel Jesus will travel for medical as authorized by Arsenal. pic.twitter.com/Y4nFKERn3y