Fotbolti.net
30.08.26 - 21:16
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Besta deildin: Sturluð dramatík á Hlíðarenda

Baldvin Þór Berndsen skoraði dramatískt jöfnunarmark

Baldvin Þór Berndsen skoraði dramatískt jöfnunarmark

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur 2 - 2 ÍA
0-1 Markús Páll Ellertsson ('9 )
1-1 Lúkas Logi Heimisson ('79 )
2-1 Jónatan Ingi Jónsson ('81 )
2-2 Baldvin Þór Berndsen ('95 )
Rautt spjald: Emil Alexander Larsen, Valur ('95) Lestu um leikinn
Valur fékk ÍA í heimsókn í mikilvægum leik í kvöld. ÍA var í 6. sæti með 26 stig fyrir leikinn og Valur gat jafnað Skagamenn að stigum með sigri og haldið í vonina að spila í efri hlutanum þegar deildin skiptist upp.

Skagamenn náðu forystunni snemma leiks. Markús Páll Ellertsson fékk nægan tíma inn á teignum og setti boltann milli fóta Frederik Schram.

Dagur Orri Garðarsson fékk gott færi til að jafna metin en Árni Marinó Einarsson varði vel frá honum. Kristófer Dagur Arnarsson slapp í gegn eftir klukkutíma leik, Árni komst í boltann og Baldvin Þór Berndsen bjargaði á síðustu stundu.

Jónatan Ingi Jónsson var síðan hársbreidd frá því að jafna metin en átti skot í stöngina.

Valsmenn náðu að jafna stuttu síðar þegar Lúkas Logi Heimisson skoraði með hörkuskoti. Jónatan Ingi kom síðan Valsmönnum yfir strax í kjölfarið með ótrúlegu marki.

Spurning hvort hann hafi ætlað að skjóta eða ekki en hann var með boltann vinstra meginn og boltinn flaug yfir Árna Marinó og hafnaði í netinu.

ÍA fékk hornspyrnu í blálokin þar sem Frederik Schram var of lengi að taka markspyrnu. Árni Marinó kom inn á teiginn og átti slakan skalla en ÍA fékk aðra hornspyrnu. Boltinn fór á Baldvin Þór sem skallaði boltann í netið og tryggði ÍA svakalega dramatískt jafntefli.

ÍA er í 6. sæti með 27 stig en Valur í 7. sæti með 24 stig fyrir lokaumferðina.
Jónatan Ingi Jónsson skoraði ótrúlegt mark

Jónatan Ingi Jónsson skoraði ótrúlegt mark

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.20+4651
2Fram21+1444
3KR20+2743
4Breiðablik20+530
5Keflavík20-328
6ÍA21-427
7Valur21-724
8Stjarnan20-1024
9FH20-1218
10Þór21-2918
11ÍBV21-1317
12KA21-1417
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.