Fotbolti.net
30.08.26 - 14:27
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið Man Utd og Ipswich: Mainoo og Rashford byrja

Marcus Rashford er í byrjunarliði Man Utd

Marcus Rashford er í byrjunarliði Man Utd

Canon

Mynd: EPA

Michael Carrick hefur tilkynnt byrjunarlið Manchester United gegn Ipswich Town í 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag, en leikurinn hefst klukkan 15:30 og er spilaður á Old Trafford.
Það eru aldeilis tíðindi hjá United en þeir Kobbie Mainoo og Marcus Rashford eru í byrjunarliði.

Þetta verður fyrsti byrjunarliðsleikur Rashford í tæp tvö ár. Lisandro Martínez og Diogo Dalot koma þá inn í vörnina í stað Noussair Mazraoui og Ayden Heaven.

Mainoo tekur pláss Andrey Santos á miðjunni á meðan Rashford kemur inn fyrir Patrick Dorgu.

Ipswich er með nákvæmlega sama lið og vann Sunderland, 2-1, í fyrstu umferðinni.

Man Utd: Lammens; Dalot, Lisandro Martínez, Maguire, Shaw; Mainoo, Tielemans; Mbeumo, Bruno Fernandes. Rashford; Cunha

Ipswich: Scherpen; O'Shea, Diop, Greaves, Davis; Núñez, Lukic; Fatawu, Enciso, Maeda; Emersonn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.