30.08.26 - 17:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Bruno Fernandes með þrennu í sigri Man Utd

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Manchester Utd 5 - 2 Ipswich Town
0-1 Leif Davis ('29 )
1-1 Bruno Fernandes ('40 )
2-1 Jacob Greaves ('56 , sjálfsmark)
3-1 Bruno Fernandes ('61 , víti)
4-1 Bruno Fernandes ('68 )
5-1 Bryan Mbeumo ('82 )
5-2 Chuba Akpom ('90 )
0-1 Leif Davis ('29 )
1-1 Bruno Fernandes ('40 )
2-1 Jacob Greaves ('56 , sjálfsmark)
3-1 Bruno Fernandes ('61 , víti)
4-1 Bruno Fernandes ('68 )
5-1 Bryan Mbeumo ('82 )
5-2 Chuba Akpom ('90 )
Bruno Fernandes skoraði þrennu þegar Man Utd vann Ipswich í fjörugum leik. Ipswich var nálægt því að komast yfir eftir stundafjórðung þegar Julio Enciso slapp í gegn en Senne Lammens varði vel frá honum.
Nýliðarnir náðu forystunni eftir hálftíma leik. Issahaku Fatawu fór illa með Luke Shaw og sendi boltann fyrir á Leif Davis sem skoraði.
Man Utd jafnaði metin undir lok fyrri hálfleiks. Marcelino Nunez rann með boltann á vallarhelmingi Man Utd. Matheus Cunha náði boltanum og sendi Bruno Fernandes í gegn og hann skoraði.
Man Utd gekk á lagið í seinni hálfleik. Liðið komst yfir snemma leiks þegar boltinn fór af Jacob Greaves og í netið eftir skot frá Harry Maguire.
Maguire fékk boltann í höndina í aðdragandanum en markið var dæmt gilt þar sem markið var sjálfsmark.
Man Utd fékk síðan vítaspyrnu stuttu síðar þegar Greaves braut á . Fernandes steig á punktinn og skoraði af öryggi. Hann fullkomnaði síðan þrennu sína stuttu síðar. Mbeumo átti skot sem fór af varnarmanni og boltinn barst til Fernandes sem skoraði af stuttu færi.
Mbeumo innsiglaði síðan sigurinn þegar hann vippaði boltanum yfir Kjell Scherpen í marki Ipswich. Boltinn skoppaði í slána og inn.
Ipswich náði að klóra í bakkann í uppbótatíma þegar Enciso vann boltann af Lisandro Martínez og sendi fyrir á Chuba Akpom sem skoraði á opið markið. Nær komst Ipswich ekki og Man Utd vann góðan sigur.
Man Utd er í 10. sæti með þrjú stig eins og Ipswich sem er í 12. sæti.