Fotbolti.net
30.08.26 - 20:48
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalska deildin

Ítalía: Curtis Jones þreytti frumraun sína - Como lagði Napoli

Leikmenn Inter fagna sigurmarkinu

Leikmenn Inter fagna sigurmarkinu

Canon

Mynd: EPA

Napoli fékk Como í heimsókn í 2. umferð ítölsku deildarinnar í dag. Martin Baturina kom Como yfir með skoti úr teignum. Rasmus Höjlund jafnaði metin með skoti úr D-boganum tæpum stundafjórðungi síðar.
Anastasios Douvikas reyndist hetja Como þegar hann skoraði eftir vandræðagang í öftustu línu Napoli aðeins fjórum mínútum eftir jöfnunarmark Höjlund.

Hakan Calhanoglu var hetja Inter þegar hann skoraði með lúmsku skoti fyrir utan teiginn gegn Cagliari. Curtis Jones kom inn á eftir rúmlega klukkutíma og spilaði sinn fyrsta leik eftir komuna frá Liverpool á dögunum.

Þá skoraði Davide Frattesi sigurmark Lazio í sigri á Genoa en hann hefur skorað í tveimur leikjum í röð. Hann gekk til liðs við félagið frá Inter í sumar. Mikael Egill Ellertsson spilaði allan leikinn fyrir Genoa.

Inter er á toppnum með sex stig, Lazio er í 4. sæti einnig með sex stig. Como er í 6. sæti með fjögur stig, Napoli í 11. sæti með þrjú stig eins og Cagliari sem er í 13. sæti. Genoa er í 16. sæti án stiga.

Cagliari 0 - 1 Inter
0-1 Hakan Calhanoglu ('9 )

Lazio 1 - 0 Genoa
1-0 Davide Frattesi ('25 )

Napoli 1 - 2 Como
0-1 Martin Baturina ('17 )
1-1 Rasmus Hojlund ('30 )
1-2 Anastasios Douvikas ('34 )

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio12+1932
2Roma12+2530
3Inter12+1529
4Milan12+1427
5Como12+1026
6Juventus12+721
7Frosinone12+520
8Napoli12+518
9Bologna12+218
10Genoa12-316
11Cagliari12-716
12Atalanta12-315
13Torino12-314
14Monza12-510
15Lecce12-1310
16Fiorentina12-119
17Parma12-128
18Sassuolo12-158
19Udinese12-136
20Venezia12-176
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.