30.08.26 - 16:41
Brynjar Ingi Erluson
Joao Pedro: Ég bað Martínez afsökunar

Emi Martínez þreytti frumraun sína með Chelsea

Mynd: EPA

Joao Pedro skoraði í bæði mörk

Joao Pedro, leikmaður Chelsea, segist hafa beðið Emiliano Martínez afsökunar á sjálfsmarkinu sem hann skoraði í 4-3 sigrinum á Brighton í dag.

TENGT EFNI
England: Joao Pedro skoraði fyrir bæði lið í fjörugum leik - Fyrsti sigur Sunderland
Brasilíumaðurinn skoraði annað deildarmark sitt á tímabilinu í fyrri hálfleik. Chelsea virtist þá ætla að rúlla yfir Brighton en gestirnir komu til baka eftir hlé og veittu heimamönnum alvöru leik.
„Við byrjuðum mjög vel en fengum síðan á okkur mörk. Við þurfum að sýna meiri stöðugleika og passa að gefa mótherjanum ekki aukinn kraft. Dibu (Emi Martínez) sýndi gæði sín.“
„Skref fyrir skref komumst við þangað sem við viljum vera en það mikilvægasta í dag var að ná í stigin þrjú. Ég þekki Brighton mjög vel og veit hversu hættulegt liðið getur verið í skyndisóknum. Í dag fékk ég tækifæri til að sýna hraðann minn fram á við,“ sagði Joao Pedro.
Hann fagnaði markinu gegn sínum gömlu félögum en sagði enga sérstaka merkingu hafa verið að baki því.
„Ég var bara að fagna. Þetta hefði getað verið fyrir framan hvaða stuðningsmenn eða lið sem er. Mig langaði einfaldlega að taka fagnið mitt og það var ekkert meira á bak við það.“
Í síðari hálfleik stýrði Pedro boltanum í eigið net fram hjá Martínez sem lék sinn fyrsta leik fyrir Chelsea aðeins nokkrum klukkutímum eftir að hafa gengið til liðs við félagið.
„Ég talaði við Dibu og bað hann afsökunar. Ég var bara að reyna að hjálpa liðinu.“
„Hann er sérstakur markvörður. Hann hefur unnið stóra titla og er kominn hingað til að hjálpa okkur. Við erum hæstánægðir með að fá hann í liðið.
„Við erum mjög sterkir fram á við og í raun með gæði um allan völl. Við erum með góða leikmenn í hverri einustu stöðu. Nú þurfum við að byggja ofan á sjálfstraustið og samheldnina og vonandi getum við haldið áfram á sigurbraut,“ sagði Pedro.