Jói Kalli: Svakalegur heiður til fjögurra fremstu

Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH vann gríðarlega mikilvægan sigur á Keflavík í dag þegar liðin áttust við á Kaplakrikavelli í 21. umferð Bestu deild karla.
„Fyrri hálfleikurinn svolítið jafnræði og þeir komast náttúrlega yfir og ég er kannski ekki alveg nógu sáttur með það en við sýnum alveg karakter og jöfnum leikinn og förum með 1-1 inn í hálfleikinn" sagði Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH eftir sigurinn í dag.
„Ég var ekki alveg nógu sáttur, mér fannst orkustigið hjá okkur ekki vera nógu gott. Við vorum svolítið passívir og að einhverju leyti ragir. Við vorum ekki alveg við sjálfir í fyrri hálfleiknum en við vorum það svo sannarlega í seinni hálfleiknum"
Það var nokkuð jafnt með liðum í fyrri hálfleik en FH tóku öll völd í seinni hálfleiknum.
„Við skoðuðum aðeins hvað við vorum að gera í fyrri hálfleiknum og við vorum ragir, við stigum ekki nógu mikið upp með öftustu línuna og þá er náttúrlega erfiðara að pressa fyrir fremstu fjóra þegar við erum ekki nógu þéttir"
„Við ákváðum að vera aggressívari í því og mér fannst Ísak og Oliver gera það ansi vel að leiða línuna í því að þora að stíga upp og pressa Keflvíkingana í seinni hálfleik"
„Það er svakalegur heiður til þessa fremstu fjögurra hjá okkur, við skiptum báðum köntunum útaf en vinnusemin í þeim í að pressa og loka á Keflvíkingana svo að þeir komust ekki í þessar stöður sem að þeir vilja komast í. Þeir geta alveg haldið í boltann og þeir geta komið Stefani Ljubicic inn í hættulegar stöður en við náðum að takmarka ansi mikið" sagði Jóhannes Karl Guðjónsson.
Nánar er rætt við Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfara FH í spilaranum hér fyrir ofan.
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 20 | +46 | 51 |
| 2 | KR | 20 | +27 | 43 |
| 3 | Fram | 20 | +14 | 43 |
| 4 | Breiðablik | 20 | +5 | 30 |
| 5 | Keflavík | 20 | -3 | 28 |
| 6 | ÍA | 20 | -4 | 26 |
| 7 | Stjarnan | 20 | -10 | 24 |
| 8 | Valur | 20 | -7 | 23 |
| 9 | FH | 20 | -12 | 18 |
| 10 | Þór | 21 | -29 | 18 |
| 11 | ÍBV | 21 | -13 | 17 |
| 12 | KA | 20 | -14 | 16 |
