Fotbolti.net
30.08.26 - 22:39
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Jón Sölvi seldur - Flýgur út á morgun

Jón Sölvi seldur - Flýgur út á morgun
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Sölvi Símonarson, markvörður ÍA, er á leið til Lyngby í Danmörku. Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, staðfesti að hann myndi fljúga út á morgun í viðtali við Fótbolta.net eftir dramatískt jafntefli gegn Val í kvöld.
Jón Sölvi er 19 ára markvörður sem ÍA keypti af Breiðabliki í vor og fengu Skagamenn þá undanþágu til að kaupa markvörðinn efnilega utan félagaskiptaglugga. Hann spilaði 8 leiki í deildinni og einn í bikar í sumar.

„Það var áhugi að utan. Menn voru að fylgjast með honum þegar hann var að spila með okkur í sumar. Hann er gríðarlega efnilegur og flottur markmaður, vonandi að honum gangi vel," sagði Lárus Orri.

Danska úrvalsdeildarfélagið er mikið Íslendingafélag. Ísak Snær Þorvaldsson er lykilmaður í liðinu og þeir Daníel Freyr Kristjánsson og Davíð Helgi Aronsson eru sömuleiðis í hópnum. Davíð Helgi er á láni frá Víkingum. Liðið er í 11. sæti deildarinnar með þrjú stig eftir sex umferðir.

Lárus Orri eftir dramatískt jafntefli: Hlaupum með það upp á Skaga

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.