30.08.26 - 21:34
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Juventus á eftir Woltemade - Zirkzee einnig á óskalistanum

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Juventus hefur rætt við Newcastle um að fá Nick Woltemade á láni. Það er Fabrizio Romano sem greinir frá.
Romano segir að ítalska félagið sé í leit að sóknarmanni þar sem Jonathan David gæti verið á útleið. Joshua Zirkzee, framherji Man Utd, er einnig á óskalista Juventus.
Hann segir að Atletico Madrid hafi boðið í David en spænska félagið vill fá hann á láni með kaupmöguleika.
Woltemade var keyptur til Newcastle frá Stuttgart fyrir metfé síðasta sumar. Hann skoraði 11 mörk í 51 leik í öllum keppnum á sínu fyrsta tímabili. Hann kom inn á í 2-0 sigri á Tottenham í gær en var ónotaður varamaður í jafntefli gegn Liverpool í fyrstu umferð.