30.08.26 - 20:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Karólína Lea lagði upp í stórsigri

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir lagði upp annað mark Inter í 6-0 sigri á Napoli í ítalska bikarnum í dag.
Hún var hins vegar tekin af velli í hálfleik þegar staðan var 4-0. Cecilía Rán Rúnarsdóttir var á sínum stað í markinu hjá Inter. Liðið er komið áfram upp úr riðlinum en mætir Lazio í lokaumferðinni í leik um toppsætið.

Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir var ekki með Parma í 2-0 tapi á Lazio. Liðið er úr leik.
Katla Tryggvadóttir kom inn á 79. mínútu þegar Fiorentina vann 3-1 sigur á Ternana. Fiorentina er í 3. sæti með þrjú stig og mætir Roma í lokaumferðinni.
María Catharina Ólafsdóttir Gros var í byrjunarliði Djurgarden sem vann Norrköping 1-0 í sænsku deildinni. Sigdís Eva Bárðardóttir var ónotaður varamaður hjá Norrköping. Djurgarden er í 9. sæti með 18 stig eftir 16 umferðir en Norrköping er í 12. sæti með 13 stig.
Emilía Kiær Ásgeirsdóttir kom inn á sem varamaður í 2-0 tapi RB Leipzig gegn Werder Bremen í þýsku deildinni. Leipzig er án stiga á botninum eftir tvær umferðir.
Hildur Antonsdóttir var tekin af velli á 62. mínútu í 3-1 sigri Newcastle gegn Burnley í síðasta æfingaleik liðsins. Enska B-deildin hefst 6. september en liðið hefur leik á heimaleik gegn Wolves.