Keflavík ekki unnið deildarleik í Krikanum síðan 1980


Mynd: Fótbolti.net - J.L.


Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Keflavík heimsækir FH í Kaplakrikann kl 17:00 í dag þegar 21. umferð Bestu deild karla heldur áfram göngu sinni.
Keflavík getur með sigri tryggt sig inn í efri hlutan fyrir skiptingu en þegar rýnt er í árangur þeirra á Kaplakrikavelli er hins vegar fátt sem hvetur til mikillar bjartsýni.
Samkvæmt vef KSÍ eru 46 ár liðin frá því Keflavík vann síðast deildarleik gegn FH í Kaplakrika. Sá sigur kom 17. maí 1980 þegar Keflavík hafði betur með tveimur mörkum gegn einu.
Síðan þá hafa liðin mæst 25 sinnum í deildarleik í Kaplakrika. FH hafa 17 sinnum hrósað sigri og þá hafa liðin skilið jöfn 8 sinnum.
Það verður því forvitnilegt að sjá hvort Keflvíkingar ná að vinna bug á þeirri grýlu sem virðist fylgja þeim á Kaplakrikavelli í dag.
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 20 | +46 | 51 |
| 2 | KR | 20 | +27 | 43 |
| 3 | Fram | 20 | +14 | 43 |
| 4 | Breiðablik | 20 | +5 | 30 |
| 5 | Keflavík | 20 | -3 | 28 |
| 6 | ÍA | 20 | -4 | 26 |
| 7 | Stjarnan | 20 | -10 | 24 |
| 8 | Valur | 20 | -7 | 23 |
| 9 | FH | 20 | -12 | 18 |
| 10 | Þór | 21 | -29 | 18 |
| 11 | ÍBV | 21 | -13 | 17 |
| 12 | KA | 20 | -14 | 16 |
