30.08.26 - 10:11
Brynjar Ingi Erluson
Liverpool áfram í viðræðum við Palace - Belgískur landsliðsmaður til Arsenal?

Fer Ismaila Sarr til Liverpool?

Mynd: EPA

Fernandez-Pardo er eftirsóttur

Mynd: EPA

Fer Ismaila Sarr til Liverpool?

Mynd: EPA

Nick Woltemade vill komast frá Newcastle, Jack Grealish skoðar framtíð sína og þá er Arsenal á eftir belgískum landsliðsmanni. Þetta og margt fleira í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Fjölmörg ítölsk félög hafa sýnt Nick Woltemade (24), framherja Newcastle United, mikinn áhuga en Napoli er talið leiða baráttuna um að fá hann á láni. (Sky Sports)
Sunderland vill fá Jack Grealish (30) á láni frá Manchester City og er sannfært um að geta landað honum. (Football Insider)
Arsenal skoðar möguleikann á að fá Matias Fernandez-Pardo (21) frá Lille en belgíski landsliðsmaðurinn er metinn á 60 milljónir punda. (Caught Offside)
Ismaila Sarr (28), vængmaður Crystal Palace, vill ganga til liðs við Liverpool en félögin eru áfram í viðræðum um senegalska leikmanninn. (Sun)
Sunderland vill einnig kaupa kamerúnska framherjann Karl Etta Eyong (22) frá Levante á Spáni. Hann er með 26 milljóna punda riftunarákvæði í samningi sínum. (Sun)
Fiorentina hefur spurst fyrir um Wilfried Gnonto (22), vængmann Leeds. (Athletic)
Sunderland er nálægt samkomulagi við Marseille um brasilíska vængmanninn Igor Paixao (26). Franska félagið ætlar þó að gera allt sem það getur til að sannfæra hann um að vera áfram. (Teamtalk)
Aston Villa hefur lagt fram tilboð í Amad Diallo (24), landsliðsmann Fílabeinsstrandarinnar hjá Manchester United. (225 Foot)
Sergej Jakirovic, stjóri Hull City, hefur hvatt félagið til að hætta við að lána enska vinstri bakvörðinn Ryan Giles (26) til Burnley þrátt fyrir að samkomulag sé í höfn. (Talksport)
AC Milan hefur náð samkomulagi við Nottingham Forest um kaup á enska vængmanninum Omari Hutchinson (22). (Sky Sports)