30.08.26 - 15:43
Brynjar Ingi Erluson
Liverpool í viðræðum við Genk - Mamardashvili til Forest?

Lucca Brughmans (t.v.) gæti verið á leið til Liverpool

Mynd: Genk

Liverpool hefur hafið viðræður við belgíska félagið Genk um hinn 18 ára gamla Lucca Brughmans. Honum er ætlað að taka sæti Georgi Mamardashvili í leikmannahópnum, en sá síðarnefndi gæti verið á leið til Nottingham Forest.
Ítalski blaðamaðurinn Matteo Moretto greindi frá því í dag að Forest hefði mikinn áhuga á að kaupa georgíska markvörðinn Mamardashvili áður en félagaskiptaglugginn lokar.
Liverpool er sagt vilja fá 30 milljónir punda fyrir Mamardashvili sem gekk til liðs við félagið á síðasta ári. Georgíumaðurinn er opinn fyrir félagaskiptunum enda hefur hann fengið takmarkaðan spilatíma hjá Liverpool, á meðan Forest er í dauðaleit að nýjum markverði.
Ýmislegt bendir til þess að Mamardashvili fari til Forest því Liverpool hefur þegar sett sig í samband við Genk um kaup á Brughmans. Belgíski markvörðurinn myndi koma strax til Liverpool ef Mamardashvili verður seldur, en annars er stefnt að því að hann gangi til liðs við félagið á næsta ári.
Brughmans hefur leikið yfir tuttugu leiki fyrir yngri landslið Belgíu og er orðinn aðalmarkvörður Genk þrátt fyrir ungan aldur.

???????? Liverpool have made official club to club contact with Genk to sign Lucca Brughmans as new goalkeeper.#LFC assessing whether to sign Brughmans for now if Mamardashvili goes to Nottingham Forest or eventually joining from 2027.
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) August 30, 2026
Deal on between clubs - follows… pic.twitter.com/UYlCLZaFe6