30.08.26 - 19:38
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Maguire: Áttum sigurinn skilið og smá heppni

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Harry Maguire átti þátt í umdeildu marki í 5-2 sigri Man Utd gegn Ipswich í kvöld.
Jacob Greaves skoraði sjálfsmark og kom Man Utd 2-1 yfir eftir fastan bolta frá Maguire. Maguire fékk boltann í höndina í aðdragandanum en markið var dæmt gilt þar sem hann skoraði ekki.

„Ég hef ekki séð þetta aftur, svo ég get ekki tjáð mig um það, en ég veit að þetta var tæpt. Þetta var ekki viljandi hendi, en ég held ekki að hann hafi snert fingurna á mér," sagði Maguire.
„Ég dró skotið reyndar aðeins fram hjá svo ég held að þetta sé sjálfsmark því miður, en það er líklega ástæðan fyrir því að þetta taldi. Ef þetta var mitt mark, þá dæma þeir það af, sem eru reglurnar nú til dags, en sem betur fer var þetta okkar megin og ég held að við höfum átt sigurinn skilið og smá heppni.“

The considerations for accidental handball before a goal is scored: pic.twitter.com/AKIq4NPWUc
— Premier League Match Centre (@PLMatchCentre) August 30, 2026