Fotbolti.net
30.08.26 - 11:42
Brynjar Ingi Erluson

Nýliðarnir halda áfram að styrkja sig

Bahoya nálgast Hull

Bahoya nálgast Hull

Canon

Mynd: EPA

Nýliðar Hull City hafa náð samkomulagi við þýska félagið Eintracht Frankfurt um franska vængmanninn Jean-Matteo Bahoya. Þetta kemur fram í BBC.
Þessi 21 árs gamli leikmaður er sagður opinn fyrir því að ganga til liðs við Hull og hefur fengið leyfi til að fara í læknisskoðun í Austur-Jórvíkurskíri.

Bahoya hefur áður verið orðaður við félög í ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur skorað sjö mörk og lagt upp önnur átta fyrir Frankfurt síðan hann kom frá Angers fyrir tveimur árum.

Hann leikur aðallega á vinstri vængnum en getur leyst flestar stöður í fremstu víglínu. Bahoya er jafnframt hraðasti leikmaður í sögu þýsku deildarinnar eftir að hafa mælst á 37,16 kílómetra hraða á klukkustund í leik gegn Bochum á síðasta ári.

Bahoya er hluti af U21 árs landsliði Frakklands og gæti orðið þrettándi leikmaðurinn sem Hull fær í sumar. Nýliðar Hull hafa farið frábærlega af stað í ensku úrvalsdeildinni og unnið fyrstu tvo leikina eftir að hafa tryggt sér sæti í deildinni í gegnum umspilið í vor.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.