Fotbolti.net
30.08.26 - 22:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Spánn: Trent lagði upp í öruggum sigri Real Madrid

Aubameyang sjóðandi heitur

Trent og Mbappe fagna

Trent og Mbappe fagna

Canon

Mynd: EPA

Real Madrid vann öruggan sigur á Malaga í spænsku deildinni í dag. Jude Bellingham kom Real Madrid yfir þegar hann valsaði framhjá varnarmönnum Malaga og skoraði með skoti úr teignum.

Hann átti síðan skalla að marki stuttu síðar en Alfonso Herrero náði ekki að halda boltanum frá markinu og skoraði sjálfsmark. Kylian Mbappe fór síðan langt með að tryggja liðinu sigurinn eftir hálftíma leik þegar hann skoraði með föstu skoti eftir sendingu frá Trent Alexander-Arnold.

Arda Guler innsiglaði sigurinn undir lokin þegar hann skoraði á opið markið af stuttu færi eftir undirbúning Vinicius Junior.

Pierre-Emerick Aubameyang er sjóðandi heitur en hann hefur skorað í öllum þremur leikjum Deportivo. Hann skoraði í frábærum sigri á Valencia í kvöld.
Real Madrid 4 - 0 Malaga
1-0 Jude Bellingham ('19 )
1-1 Alfonso Herrero ('26 , sjálfsmark)
2-1 Kylian Mbappe ('30 )
3-1 Arda Guler ('90 )

Celta 0 - 2 Athletic
0-1 Alejandro Berenguer ('20 )
0-2 Robert Navarro ('22 )

Deportivo 3 - 1 Valencia
0-1 Cesar Tarrega ('13 , sjálfsmark)
1-1 Pierre Emerick Aubameyang ('17 )
1-2 Umar Sadiq ('26 )
1-3 Mouctar Diakhaby ('59 , sjálfsmark)
Rautt spjald: Adria Altimira, Deportivo ('90)

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Real Madrid3+89
2Atletico Madrid3+47
3Alaves3+47
4Barcelona2+76
5Sevilla3+16
6Betis3-16
7Deportivo3+25
8Osasuna2+14
9Racing Santander304
10Levante304
11Espanyol3+13
12Getafe2-23
13Athletic3-23
14Real Sociedad3-33
15Villarreal3-12
16Vallecano2-11
17Celta3-31
18Valencia3-31
19Malaga3-61
20Elche3-61
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.