Fotbolti.net
30.08.26 - 07:00
Guðmundur Jónasson

Úrslitakeppni 5. deildar: Stokkseyri í góðum málum - Jafnt hjá Hömrunum og Smára

Hamrarnir geta farið upp annað árið í röð

Hamrarnir geta farið upp annað árið í röð

Canon

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Úrslitakeppnin í 5.deild hófst í dag þar sem Smári fengu Hamrana í heimsókn og Stokkseyri tók á móti Skallagrím.

Smári tóku á móti Hömrunum í hádeginu í fyrri undanúrslita leik í úrslitakeppni 5.deildar karla. 

Hamrarnir byrjuðu leikinn betur og strax á 13. mínútu kom Tómas Veigar Hömrunum yfir með skalla sem lak inn í markið. Smáramenn sóttu svo aðeins og náðu að jafna leikinn 1-1 á 24. mínútu með marki frá Arnari Frey og staðan í hálfleik 1-1. Smári byrjaði seinni hálfleikinn af miklum krafti og komust yfir á 47. mínútu með marki frá Gunnari Breka Mýrdal, Hamrarnir fengu vítaspyrnu á 60.mínútu eftir góðann sprett frá Kára Gunnarsyni sem var tekinn niður í vítateig Smára, á punktinn steig Gunnar Þórir Björnsson sem setti boltann beint á Róbert Aron í marki Smára sem sló boltann í markið og boltinn lak inn. Lokatölur 2-2 og seinni leikurinn fer fram 5. september á Greifavellinum.

Smári 2 - 2 Hamrarnir

0-1 Tómas Veigar Eiríksson ('13 )

1-1 Arnar Freyr Sigurgeirsson ('24 )

2-1 Gunnar Breki Myrdal Gunnarsson ('47 )

2-2 Gunnar Þórir Björnsson ('61 )

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Stokkseyri tóku svo á móti Skallagrím í seinni leik dagsins.

Arilíus Óskarsson kom Stokkseyri yfir með góðri vítaspyrnu á 37. mínútu en stuttu fyrir hálfleik mætti Carlos Javier Castellano og jafnaði metin á 42. mínútu og staðan í hálfleik því 1-1. Það dró svo ekki til tíðinda fyrr en á 83. mínútu þegar Hafþór Berg Ríkharðsson kom Stokkseyri yfir 2-1 og í mjög góða stöðu fyrir seinni leikinn í undanúrslitunum.

Seinni leikurinn fer fram á Skallagrímsvelli laugardaginn 5. september.

Stokkseyri 2 - 1 Skallagrímur

1-0 Arilíus Óskarsson ('37 )

1-1 Carlos Javier Castellano ('42 )

2-1 Hafþór Berg Ríkarðsson ('83 )

Mynd: Stokkseyri
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.