Fotbolti.net
30.08.26 - 10:43
Brynjar Ingi Erluson

West Ham að kaupa liðsfélaga Amin Cosic á 18 milljónir punda

West Ham að kaupa liðsfélaga Amin Cosic á 18 milljónir punda
Canon

Mynd: Viking

West Ham United er í viðræðum við Noregsmeistara Viking um norska vængmanninn Edvin Austbo.
Austbo er 21 árs og hefur skorað 15 mörk í 71 leik fyrir Viking síðan hann lék sinn fyrsta leik með aðalliðinu árið 2022.

Athletic greinir frá því að West Ham hafi boðið 18 milljónir punda í Austbo og að viðræður félaganna gangi vel. Hann var valinn besti ungi leikmaður norsku úrvalsdeildarinnar á síðasta ári.

Austbo er í U21 árs landsliði Noregs en hefur alls leikið 34 leiki og skorað eitt mark fyrir yngri landslið þjóðarinnar.

West Ham leikur í ensku B-deildinni eftir að hafa fallið úr úrvalsdeildinni í vor.

Þetta ættu að vera frábærar fréttir fyrir Amin Cosic, sem gekk til liðs við Viking frá KR í sumar, en hann leikur í sömu stöðu og Austbo á vinstri vængnum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.