Fotbolti.net
30.09.26 - 10:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Börsungar ósáttir við Ancelotti

Raphinha.

Raphinha.

Canon

Mynd: EPA

Katalóníustórveldið Barcelona er ósátt við Carlo Ancelotti, landsliðsþjálfara Brasilíu, eftir Raphinha meiddist í vináttulandsleik gegn Ástralíu.

Raphinha byrjaði leikinn gegn Ástralíu en þurfti að fara af velli í hálfleik. Hann hafði einnig byrjað fyrri leik Brasilíu gegn Ástralíu og spilaði þá allan leikinn.
Samkvæmt El Chiringuito er mikil óánægja innan herbúða Barcelona með álagið sem Raphinha var settur undir á meðan hann var með brasilíska landsliðinu. Félagið er sérstaklega ósátt við að Ancelotti hafi notað hann í báðum leikjum þrátt fyrir mikið leikjaálag að undanförnu.

Meiðslin sjálf reyndust þó sem betur fer ekki eins alvarleg og óttast var í fyrstu. Ákvörðun var svo tekin í samráði við Barcelona um að senda leikmanninn aftur til félagsins til frekari skoðunar og til að koma í veg fyrir að meiðslin versnuðu.

Raphinha var frá keppni í meira en 150 daga á síðasta tímabili eftir að hafa glímt við fjögur mismunandi meiðsli í hægra læri. Hann hefur því verið viðkvæmur fyrir meiðslum á svæðinu og Barcelona vill augljóslega ekki taka neina áhættu með einn af sínum mikilvægustu leikmönnum.
Carlo Ancelotti, landsliðsþjálfari Brasilíu.

Carlo Ancelotti, landsliðsþjálfari Brasilíu.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.