30.09.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Fékk standandi lófaklapp í Sevilla

Luka Modric í leiknum í gær

Mynd: EPA

Luka Modric í leiknum í gær

Mynd: EPA
Króatíski miðjumaðurinn Luka Modric fékk frábærar móttökur í 4-1 tapi Króatíu gegn Spáni í Þjóðadeildinni í gær.
Hinn 41 árs gamli Modric kom inn af bekknum í síðari hálfleik gegn heims- og Evrópumeisturunum.
Áhorfendur risu úr sætum og klöppuðu honum lof í lófa ásamt því að syngja nafn hans.
Modric er einn besti leikmaður í sögu spænsku deildarinnar. Hann lék með Real Madrid frá 2012 til 2025 og vann þar 28 titla, þar á meðal Meistaradeild Evrópu sex sinnum.
Króatinn var greinilega hrærður yfir móttökunum og þakkaði fyrir sig á samfélagsmiðlum eftir leik.
„Takk, Spánn,“ skrifaði Modric.

?????????????????? Listen to the Spanish crowd as Luka Modri? came on!pic.twitter.com/VplSq4pAvS https://t.co/IKi0CP3kg0
— Croatian Football ? (@CroatiaFooty) September 29, 2026