Fotbolti.net
30.09.26 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

Forsetarnir búnir að sættast eftir dramatíkina í sumar

Joan Laporta (t.v.) er forseti Barcelona

Joan Laporta (t.v.) er forseti Barcelona

Canon

Mynd: EPA

Joan Laporta, forseti Barcelona, segist hafa náð sáttum við Gil Martin, forseta Atlético Madríd, eftir dramatíkina á milli félaganna í sumarglugganum.
Börsungar beittu ýmsum brögðum til að reyna að fá argentínska sóknarmanninn Julian Alvarez frá Atlético.

Félagið talaði opinberlega um áhugann og nýtti fjölmiðla til að setja pressu á Alvarez. Það virkaði, því leikmaðurinn lét Atlético vita að hann vildi fara til Barcelona.

Atlético var hins vegar ekki tilbúið að láta svona fara með sig og neitaði alfarið að selja hann til Barcelona. Þá hófst nokkuð dramatískt stríð á milli félaganna.

Greint var frá því að Atlético væri opið fyrir því að selja Alvarez, bara ekki til Barcelona. Arsenal hafði einnig áhuga, en Alvarez kaus frekar að vera áfram hjá Atlético en að snúa aftur til Englands.

Laporta og Martin hittust síðan á ráðstefnu evrópskra toppfélaga í Kaupmannahöfn í gær og virðist nú vera búið að sætta deilurnar.

„Við hittumst og féllumst í faðma. Ég er viss um að við séum búnir að sættast og núna er búið að hreinsa andrúmsloftið. Hann er stórkostlegur maður sem ég kann mikið að meta,“ sagði Laporta.

Alvarez er enn hjá Atlético, en spurningin er hvort Barcelona reyni aftur í janúarglugganum og hvaða áhrif það mun hafa á vináttu Laporta og Martin.
Gil Martin (t.h.) var ekki ánægður með kollega sinn í sumar

Gil Martin (t.h.) var ekki ánægður með kollega sinn í sumar

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.