Fotbolti.net
30.09.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson

Ísland í dag - Blikar þurfa kraftaverk en allt opið hjá FH

FH heimsækir Frankfurt til Þýskalands

FH heimsækir Frankfurt til Þýskalands

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Kvennaboltinn
Breiðablik og FH fá að vita örlög sín í Evrópubikar kvenna í kvöld þegar seinni leikir liðanna í annarri umferð forkeppninnar fara fram.
Breiðablik heimsækir Czarni til Póllands. Fyrri leik liðanna lauk með 6-2 sigri Czarni í Kópavogi og bíður Blika því afar erfitt verkefni í kvöld.

FH er í aðeins betri stöðu eftir naumt 1-0 tap gegn Eintracht Frankfurt í Kaplakrika. Það einvígi er enn galopið og FH á því enn möguleika á að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum.

Leikir dagsins:

Evrópubikar kvenna
16:30 Eintracht Frankfurt-FH (Am Brentanobad)
17:00 Czarni-Breiðablik (Zaglebiowski Park Sportowy)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.