30.09.26 - 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
John Cross: Hversu barnalegur var ég?

John Cross.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Pep Guardiola, fyrrum stjóri Manchester City.

Mynd: EPA

John Cross.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Titillinn mun hafa stjörnumerki við hlið sér. Enginn fótboltaáhugamaður mun nokkurn tímann líta á hann á sama hátt," skrifar John Cross, sem er yfir fótboltaumfjöllun Mirror, um mál Manchester City.
Þarna er hann sérstaklega að skrifa um eitt ótrúlegasta augnablik í sögu ensku úrvalsdeildarinnar, þegar Sergio Aguero skoraði sigurmark Man City gegn QPR árið 2012 eftir 93 mínútur og 20 sekúndur og tryggði þar sem City sinn fyrsta titil í ensku úrvalsdeildinni.

„Þetta eyðileggur ekki bara arfleifð City. Það tekur líka stóran hluta úr sögubókum ensku úrvalsdeildarinnar, og þess vegna ætti hver einasti fótboltaáhugamaður að vera reiður. Besta deild í heimi er að eilífu lituð. Nærri tveir áratugir eru komnir til skoðunar," skrifar Cross.
„Við skulum hafa það alveg á hreinu: þetta er stærsta hneykslið í sögu bresks íþróttalífs. Stærsta skömmin í enskum fótbolta. Þetta er átakanlegt."
Cross telur að eigendur City verði sviptir félaginu, þeir megi ekki halda áfram að stjórna því eftir niðurstöðu óháðrar nefndar sem var birt í gær. Í 40 blaðsíðna dómsorðum var farið yfir það hvernig City braut fjárhagsreglur ensku úrvalsdeildarinnar og UEFA yfir langt tímabil. City segist þó saklaust og ætlar að áfrýja niðurstöðunni.
„Ég var viðstaddur svo mörg þessara afreka og dáðist alltaf að fótboltanum þeirra og árangri Guardiola. Hversu barnalegur var ég?" skrifar Cross en hér fyrir neðan má sjá það helsta úr leiknum gegn QPR frá 2012.