Fotbolti.net
30.09.26 - 11:12
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Óli Kristjáns fer ekki með U21 landsliðinu til Færeyja

Óli á hliðarlínunni gegn Sviss í gær.

Óli á hliðarlínunni gegn Sviss í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
U21 landslið karla spilar í næstu viku gegn Færeyjum í lokaleik sínum í undankeppni Evrópumótsins 2027. Strákarnir eru í góðum möguleika á að komast í umspil eftir að hafa unnið stórkostlegan 5-1 sigur gegn Sviss í gær.

Ólafur Kristjánsson og Lúðvík Gunnarsson hafa stýrt U21 landsliðinu í síðustu leikjum eftir að Ólafur Ingi Skúlason hætti til að taka við Breiðabliki.
Ólafur er þó aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins líka og þar er framundan mikilvægt verkefni gegn Króatíu í umspili fyrir HM. Stelpurnar spila útileikinn í næstu viku ytra og stangast það á við verkefni U21 landsliðsins.

Fótbolti.net hafði samband við Eystein Lárusson, framkvæmdastjóra KSÍ, í dag og spurði hann út í málið.

„Ólafur Kristjánsson mun einbeita sér að A-landsliði kvenna," segir Eysteinn við Fótbolta.net.

„Lúlli verður með U21 landsliðinu og Þórhallur (Siggeirsson) úr U19 landsliðinu mun aðstoða hann þar."

Hvað með framhaldið?
En er eitthvað að frétta af þjálfaramálum U21 landsliðsins til framtíðar?

„Við ætlum að klára þessa keppni. Við vorum búin að ákveða að leysa þetta svona núna og svo verða málin skoðuð í framhaldinu. Það er ekkert farið af stað í því," sagði Eysteinn en það hefur verið virkilega gaman að fylgjast með U21 landsliðinu í síðustu leikjum.

„Við erum mjög ánægð með þennan glugga, það er ekki hægt að segja annað. Þessir tveir leikir á móti Frökkum og Sviss voru virkilega flottir."

Til þess að komast í umspil þurfa strákarnir í U21 að vinna í Færeyjum og treysta á það að Sviss vinni ekki Frakkland á sama tíma. Leikurinn gegn Færeyjum er 6. október næstkomandi.
Þórhallur Siggeirsson.

Þórhallur Siggeirsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

U21 vann frábæran sigur á Sviss í gær.

U21 vann frábæran sigur á Sviss í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.