30.09.26 - 08:30
Elvar Geir Magnússon
Van Dijk orðaður við Real Madrid - Mateta til Man Utd?

Virgil van Dijk, varnarmaður Liverpool.

Mynd: EPA

Mateta á Old Trafford?

Mynd: EPA

Virgil van Dijk, varnarmaður Liverpool.

Mynd: EPA

Á hverjum degi skyggnumst við inn í slúðurheima í boði Powerade. BBC tók saman það helsta sem er til umfjöllunar í miðlunum.
Real Madrid íhugar að reyna að fá fyrirliða Liverpool, Virgil van Dijk (35), en samningur hollenska miðvarðarins rennur út í lok tímabilsins. (Mundo Deportivo)
Bayern München hyggst bjóða franska sóknarmanninum Michael Olise (24) nýjan samning til ársins 2032 en núverandi samningur hans gildir til ársins 2029. (Bild)
Bayern hefur hins vegar gert lítið úr þeim orðrómi að það hafi áhuga á að fá markvörð Everton og enska landsliðsins, Jordan Pickford (32). (TeamTalk)
Manchester United hefur augastað á franska sóknarmanninum Jean-Philippe Mateta (29) hjá Crystal Palace. (TeamTalk)
United hyggst bjóða enska varnarmanninum Luke Shaw (31) nýjan samning, en núgildandi samningur hans rennur út í lok tímabilsins. (Football Insider)
Bayern München horfir til franska varnarmannsins Jules Kounde (27) en hann hefur færst aftar í goggunarröðina hjá Barcelona. (Sport)
Tottenham Hotspur hefur sýnt suður-kóreska varnarmanninum Kim Min-jae (29) hjá Bayern München áhuga. (Sport)
Matteo Darmian (36), fyrrum varnarmaður Manchester United, mun hefja æfingar með Bologna á miðvikudag eftir að hafa yfirgefið Inter í lok síðasta tímabils. (Gianluca Di Marzio)