fös 30. október 2020 12:27
Magnús Már Einarsson
Klopp fylgist með leikmönnum sínum á Instagram
Jurgen Klopp
Jurgen Klopp
Mynd: Getty Images
„Síðan í sumar hef ég verið á Instagram. Ég er ekki virkur þar en ég fylgist með öllum leikmönnum mínum," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, í viðtali í vikunni.

Klopp hefur í gegnum tíðina sagt að hann sé of gamall fyrir samfélagsmiðla en hann ákvað að búa til aðgang á Instagram í sumar.

„Ég er þar undir leyninafni. Ég skil meira og meira hvernig samfélagsmiðlar virka en ég mun aldrei vera vikrur þar sjálfur. Þetta er mjög skemmtilegt og það eru alltaf sömu strákarnir sem eru að nota þetta."

„Ég er búinn að segja Ox (Alex Oxlade-Chamberlain) að ég fylgist með honum og eiginkonu hans. Þau eiga greinilega skemmtilegt líf þegar ég er ekki í kringum þau!"

„Það góða er að ég mun aldrei aftur gleyma afmælisdegi hjá einum af leikmönnum mínum."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner