Berglind og Sveindís einnig á skotskónum
Ísland er þessa stundina að spila við Kýpur í undankeppni HM kvenna og er staðan 3-0 fyrir stelpunum okkar.
Lestu um leikinn: Kýpur 0 - 4 Ísland
Um 15 mínútur eru liðnar af seinni hálfleik, en öll mörkin komu í fyrri hálfleiknum.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, leikmaður Bayern München, kom Íslandi yfir með frábæru marki beint úr aukaspyrnu. Þetta var alls ekki auðveldur staður til að skora úr, en Karólína gerði bara nákvæmlega það. Þetta var vel gert hjá Karólínu, en það er ekki hægt að segja það sama um markvörð Kýpur.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði annað mark Íslands úr vítaspyrnu og Sveindís Jane Jónsdóttir gerði þriðja markið.
Hægt er að sjá öll mörkin hér að neðan. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á RÚV.
Fyrsta mark leiksins skoraði Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, beinustu leið úr aukaspyrnu💥 pic.twitter.com/EFdSAR5iGG
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) November 30, 2021
Ísland er komið 2-0 yfir gegn Kýpur í síðasta leik liðsins á þessu ári👊 pic.twitter.com/9dja0QhfcY
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) November 30, 2021
Sveindís Jane kemur Íslandi í 3-0! pic.twitter.com/YN1SY3wKpg
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) November 30, 2021
Athugasemdir