Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 31. janúar 2020 21:55
Ívan Guðjón Baldursson
Fótbolta.net mótið: Andri með fernu gegn Hvíta riddaranum
Mynd: Kári
Kári 6 - 1 Hvíti riddarinn
1-0 Andri Júlíusson ('39)
2-0 Birgir Steinn Ellingsen ('43, víti)
3-0 Andri Júlíusson ('56)
4-0 Andri Júlíusson ('83)
5-0 Benedikt Valur Árnason ('86)
6-0 Andri Júlíusson ('89)
6-1 ('90)

Kári gjörsamlega rúllaði yfir Hvíta riddarann er liðin mættust í C-deild Fótbolta.net mótsins í kvöld.

Andri Júlíusson lék á alls oddi og skoraði fyrsta mark leiksins á 39. mínútu, skömmu áður en Birgir Steinn Ellingsen tvöfaldaði forystuna úr vítaspyrnu. Staðan 2-0 í leikhlé.

Andri bætti öðru marki sínu við í upphafi síðari hálfleiks og fullkomnaði svo þrennuna á 83. mínútu, og staðan orðin 4-0.

Benedikt Valur Árnason gerði fimmta mark Kára og hafði Andri tíma til að bæta sjötta markinu við áður en Mosfellingar skoruðu fánamarkið.

Andri skoraði því fernu í 6-1 sigri Kára, sem er með fjögur stig eftir jafntefli við KV í fyrstu umferð. Hvíti riddarinn er með þrjú stig eftir sigur gegn KFS.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner